Prófíll

  • Nafn: Svala Hrund Stefánsdóttir
  • Staður: Akureyri
  • Atvinna: Toyota Akureyri
  • Hjúskaparstaða: mjög föst!:)

Auglýsing

Annað áhugavert

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

flarg

28. ágúst 2008 klukkan 23:58
jæa! þá er skólinn byrjaður að fullum krafti... aftur... enn eina ferðina!
en ég er farin að sjá fyrir endann á þessu! 15 einingar eftir! og stefnan tekin á hvíta kollinn næst komandi 19 des!
ef allt fer eftir áætlun er það partý partý! og svo eftir það... hver veit?

en annars er það helsta á döfinni að ég og Lilja ætlum að skella okkur suður á morgun! og Arna fylgir fast eftir á laugardaginn! Ný búnar að fara í gegnum dramatískan skilnað og það er sko passað að láta ekki líða of langan tíma á milli hittinga! Glottandi
Lilja verður svo tvítug næsta mánudag þannig það þarf víst að dekstra eitthvað við hana um helgina!

En ég vill tjá ánægju mína til hennar Erlu að hafa kommentað á bannerinn minn! þessi tímalausi banner (eins og hún orðaði það svo vel) hefur einmitt fylgt mér í blogginu í langan tíma og mun án efa halda því áfram!

annars er ég hálf orðlaus við hliðiná öllum þessum ævintýra fræslum sem maður er að lesa hérna!
hvað getur maður skrifað um sem toppar heimsreisur, dvöl í San Fransisco , Alabama, DK eða hvað og hvað!

Ég get kanski sagt þá frá því að ég fór í keilu, og ég tapaði! tók því íþróttamannslega! sagði ekki að þetta væri ömurlegur leikur og ég kalla það nú framför á hæsta stigi!!
mætti halda að maður sé eitthvað að þroskast... eeen ég ætla nú ekki að staðfesta neitt!Hlæjandi

annars get ég sagt ykkur það stelpur mínar að á meðan þið eruð fyrir sunnan eða í útlöndum eða hvað eða hvar þá verð ég til staðar hérna á Akureyri og passa að fuglarnir drepist ekki úr hungri! einhver þarf að sjá um það og ég hef ákveðið að taka það að mér!

http://www.facebook.com/photo.php?pid=941319&id=582481485

eins og sjá má á þessari mynd þá kann ég mitt fag! (ég kann ekki að setja myndir inná færsluna)

jæja! ég segi það gott í bili!
-svala:)

Svala Hrund Stefánsdóttir
22 athugasemdir

þetta byrjar vel!

11. ágúst 2008 klukkan 12:38

Jæja! nú er kominn 11 ágúst!
Sem þýðir að Ég er búin að eiga afmæli!
Versló er búin!
Sumarið er alveg að klárast!
Halldór er farinn út!
Snædís fer út eftir 3 daga!
Nanna fer á föstudaginn!
Árný er e-d að plebbast í Svíþjóð og missti af afmælinu mínu eins og henni einni er lagið!Glottandi
En það er nú enþá smá í að Lilja fari í Danaveldi!

En þetta er svona hluti af því sem er að gerast þessa dagana!

En eins og ég sagði, þá er maður "loksins" orðin tvítug!
Mér líður ekkert öðruvísi!
á tvítugs aldri á maður víst að vera lögleg í allt og allt það! En tilfinningin er sú sama!Ég er enþá bara 10 ára andlega! haha! Brosandi

En það er nú gaman að segja frá því að Ég og Jónas eigum tveggja ára afmæli í dag!
2 ár.. tíminn líður hratt! Brosandi

Og stóri bróðir er farinn! Alltaf þarf hann að vera með e-d svona vesen! hehe! En það verður þá bara hans höfuðverkur að hýsa mig þegar ég fer næst til Bandaríkjanna!

Svo á morgun ætla ég að hitta stelpurnar mínar! Skella okkur út að borða og svona skemmtilegt áður en hluti af þeim yfirgefa Akureyri!
Ég byrgi reiðina inni! haha!

Svo byrjar skólinn bara í næstu viku! rosalega þýtur sumarið framhjá manni! sumarfrí í 3 mánuði og mér finnst eins og ég hafi farið í sumarfrí fyrir kanski svona mánuði... merkilegt er þetta alltaf!


Annars ætla ég held ég ekki að hafa þetta lengra í bili!
Merkilegt hvað þetta er núna stutt og hnitmiðað hjá mér! össs!

-svala:)

Svala Hrund Stefánsdóttir
9 athugasemdir

Dýrið er vaknað!!!!!

24. júlí 2008 klukkan 12:59
jæja! dvalanum er lokið!

ég tók þá ákvörðun að halda mínum glæsta blogg ferli áfram!
búin að taka mér að mínu mati alltof langa pásu! en ég kenni hönnuðum blog.central alfarið um það!
heimskulegar nýjar stillingar og vesen gerðu mig reiða og ég ómeðvitað lagði lyklaborðið á hilluna!

svo með nýrri "byrjun" fylgir ný síða! sem er þessi!

ég festist nú við það um daginn að lesa yfir gamlar færslur, og það var bara fínasta skemmtun! og ég átti það nú til að koma með skemmtilegar og jafnvel fróðlegar færslur! (kanski ekki fróðlegar en mér fannst allavegna skemmtilegt að lesa þær!) :)

en það er allavegna hægt að segja að ég kunni að blogga, ég er ekki svo viss um að ég kunni það lengur, en það kemur allt saman aftur er ég viss um!Brosandi

en ég hugsaði líka að það er nú eiginlega möst að byrja aftur að blogga, því að það eru svo margir að fara að skoða heiminn, fara í skóla erlendis eða fara í skóla fyrir sunnan!
svona til að henda inn fréttum frá Ak fyrir þá sem eru að yfirgefa bæinn! Glottandi

þannig það er ekkert annað í stöðunni en að reyna að vera dugleg að henda inn færslum!

annars er þessi færsla vonandi bara byrjunin á þessari nýju síðu minni!og að því tilefni ætla ég ekki að hafa þetta lengra að þessu sinni!

ótrúlegt en satt þá held ég bara að þessi sé frekar stutt og hnitmiðuð!!!Glottandi

-svala:)
Svala Hrund Stefánsdóttir
9 athugasemdir

spurning!

06. desember 2006 klukkan 19:18
er þessi síða e-d að gera sig? ég er ekki viss... ætti ég kanski bara að halda mig við www.blog.central.is/halahund ég er á krossgötum... veit ekki hvaða götu ég á að keyra niður... en samt sem áður fyrsta færlsa mín á þessari síðu... kanski það síðasta líka!
Svala Hrund Stefánsdóttir
1 athugasemd